Cavalier King Charles Spaniel
11.05.2007 15:25:11 / antheiar

:)

Sætu hvolpar :D

Að verða 8 vikna gamlir

Eros
Elara
Amor
Ares

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 23:53:35 / antheiar

Edil

Elsku litla krúttið mitt fékk að fara í dag eftir miklar rannsóknir í tvo daga, 4 vikna og tveggja daga gömul. Hún fór í gær og fékk saltvatn í æð og fór síðan aftur uppeftir klukkan 09 í morgun og var alveg til 14.00 í dag í rannsókn. Tekið var blóðsýni & rönken mynd, og í ljós kom að lifrin voru ekki að þroskast með henni og að hún var full að vökva.

Ég fór því uppá spítala um fjögur leytið í dag og litla krílið mitt fékk að sofna svefninum langa rétt fyrir klukkan fimm. Þetta var rosalega erfitt að horfa upp á hana deyja í höndunum á mér, en ég veit að henni líður mikið betur núna.

Það verður skrítið að þurfa ekki að vakna á nóttunni og gefa henni pela, þurfa ekki að hafa áhyggjur að það sé of kalt inni í herberginu eða passa að hinir hvolparnir séu nokkuð að príla ofaná henni. Ég gerði allt sem ég gat, vildi að þetta hefði farið á annann veg, en svona er lífið. Hún hefði orðið mánaðar gömul á morgun, 18apríl.

Edil fer í sérbrennslu á næstu dögum og verður askan hennar því hjá mér í litlri öskju þar til ég finn stað þar sem ég vil jarða hana.

seinasta myndin- tekin í nótt, 17apríl 2007.

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 23:19:18 / antheiar

Myndir myndir myndir

Jæja orðið ansi langt síðan seinast. Ákvað að skella hér inn nýjum myndum af krílunum sem eru núna orðin rúmlega þriggja vikna krúsíbollur. Kem með einstaklings myndir frá því þeir voru 2 vikna og svo 3 vikna gamlir.

Annars gengur allt rosalega vel. Allir þyngjast vel og krílin komin í rúm 1000gr. Edil litla ætlar að þyngjast eitthvað hægt og er aðeins 510gr en þó ótrúlega spræk. Er komin á pela svo hún fái meira að drekka en braggast vel. Hún var fyrst að opna augun skvísan tólf daga gömul og sú fyrsta að stíga í lappirnar viku síðar. Þeir eru því núna allir fimm farnir að rétt staulast um í gotkassanum, hálf valtir þessar elskur en svo duglegir.

En jæja, nóg komið af blaðri, hér koma einstaklingsmyndirnar. Ég hendi svo inn fleiri myndum af krílunum á næstu dögum.

.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 02:05:33 / antheiar

Viku gamlir :)

 Tölvan er í einhverju rugli. Dagsetninginn hérna uppi á að vera 25.mars kl.23.16

Jæja þá er liðin vika síðan litlu krílin komu í heiminn. Allt hefur gengið eins og í sögu þessa vikuna og heilsast öllum hvolpunum alveg ótrúlega vel. Þau eru hver öðru duglegri á spena og stækka svona ótrúlega hratt. Strákarnir eru orðnir algjerar bollur og ekkert má sterkir og sætir. Elara tekur þessu hinsvegar bara í rólegheitunum og er alltaf voða róleg og stillt þessi elska. Edil litla stelpan mín þyngdist mjög vel fyrstu dagana en hefur núna verið að þyngjast frekar lítið. Ég fylgist því rosalega vel með því að hún haldist á spena og fær hún að auki einka notkun á besta spenanum með mestu mjólkinni. Hef verið að gefa henni Puppy Boozt með sem á að auka orkuna í henni en ég vona bara að litla krílið fari að stækka og fitna eins og restin af þeim.

Mér finnst alveg með ólíkindum hvað Cassie hefur mömmu eðlið í sér. Hún er svo ótrúlega dugleg mamma, liggur hjá krílunum sínum daginn út og daginn inn. Er þó farin að trítla framm og kíkka á okkur í nokkrar mínútur svona annað slagið,  skokkar svo bara aftur inn í herbergi og legst í gotkassann.

En bara stutt up-date frá okkur í bili. Er búin að henda inn fullt af myndum undir 'fyrsta vikan' hér til hliðar.

Góða nótt frá okkur krílunum og Cassie sætustu.

.
.
.
.

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 14:01:40 / antheiar

Hvolpar fæddir.

Jæja þá eru litlu hvolpakrílin loksins komin í heimin.

Cassie gaut fimm yndislegum hvolpum á sunnudagsmorgun, þann 18.mars. Tveimur blenheim tíkum og þremur blenheim rökkum. Allt gekk eins og í sögu hjá henni Cassie, fyrsti hvolpurinn kom í heiminn klukkan 06.28 og sá seinasti var kominn klukkan 09.05 og stóð hún sig eins og hetja. Þriðji hvolpurinn kom reyndar út í fylgjunni og var ekki langt frá því að deyja, en ég hamaðist á henni í 40 mínútur þar til litla krílið loksins fór að anda og hreyfa sig. Dýralæknirinn kom síðan í heimsókn til þess að tékka ástandið á þeirri litlu og gat ekki betur séð en að hún ætti eftir að braggast vel eins og hinir.

Það gekk mjög vel með hvolpana í nótt. Við vigtun í morgun kom í ljós að Eros hefur þyngst um 19gr, Amor um 17gr & Ares um heil 20gr sem er allt alveg frábært! Litla krílið hún Edil þyngdist aðeins um eitt gramm og Elara léttist um 4grömm. Þeir eru þó allir duglegir á spena, en nú þarf að passa að stelpurnar fái vel að drekka og þá sérstaklega hún Edil þar sem hún er lang minnst.

En jæja, hef þetta ekki lengra í bili.  Ég er enþá að vinna í þessari síðu, en hef þó sett inn margar myndir hér til hliðar.

 .
.
.
.

» 9 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill